Tilkynning!
Leitaðu með

Saga KTÍ

 

 

Útskipti kælimiðla

Kynningarfundur um útskipti kælimiðla verður miðvikudaginn 9. desember kl. 12:00 - 13:30 í húsi VFÍ að Engjateigi 9.

Boðið verður upp á samlokur og gos í upphafi fundar.

Frank Rinne og Mark Hughes frá Du Pont koma hingað á vegum Kristján G. Gíslason ehf, sem hefur flutt inn kælimiðla frá Du Pont í nokkra áratugi.

Þeir munu segja frá eigin rannsóknum á því hvernig best sé að skipta um kæliefni í kerfum, m.a. dælukerfum í togurum.
Jafnframt kynna þeir efni sitt ISCEON, sem kemur í staðinn fyrir R-22 og blöndur með R-22.

Fundurinn er opinn öllum meðan húsrúm leyfir.



Stjórn Kælitæknifélags Íslands

 

webmaster