Tilkynning!
Leitaðu með

 

Aðalfundur Kælitæknifélags Íslands 2004

Aðalfundur KTÍ fyrir árið 2003, var haldinn á Grand Hótel Reykjavík 30. nóvember.

Dagskrá aðalfundar var samkvæmt lögum KTÍ.

Fundarstjóri var Jón Torfason.

Formaður félagsins Gísli Þorsteinsson skýrði frá störfum stjórnar og kom fram í máli hans að stjórnin hélt 11 stjórnarfundi.
Í lokaorðum Gísla kom fram að hann ætlaði að hætta sem formaður og þakkaði fyrir sig.

Næst á dagskrá var skýrsla gjaldkera félagsins Jón Ragnarssonar. Lagði hann fram endurskoðaða reikninga félagsins, sem síðan voru samþykktir.
Fram kom að peningaleg staða félagsins væri góð, þó tap hafi verið á reikningsárinu 2003. Félögsgjöld hafa verið óbreytt í nokkur ár.
Mikil umræða var um félögsgjöld og þeir félagsmenn sem tjáðu sig vildu halda peningalegri stöðu félagsins góðri., vegna þess að það gæti verið þörf á að fá einhverja aðila til þess að fræða félagsmenn og þá væri gott að eiga svona sjóð til að fara í. Þess vegna vildu menn athuga með hækkun félagsgjalda.
Rökin fyrir óbreyttum félagsgjöldum undan farin ár var einmitt góð peningaleg staða félagsins, og það væru félagarnir sem hefðu búið til þennan góða sjóð.

Þá var komið að kosningu til stjórnar KTÍ.

Þar sem frá farandi formaður gaf ekki kost á sér , þurfti að kjósa annan til starfsins.
Einn var í framboði og það var Rögnvald Erlingssson. Var hann kosinn með lófaklappi.

Þar sem einn stjórnarmaður Jón Torfason gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu þurfti að kjósa annan í hans stað.
Einn var í kjöri og var það fráfarandi formaður Gísli Þorsteinsson. Hann var kosinn með lófaklappi.

Stjórn Kælitækinifélags Íslands næsta starfsár er þannig skipuð :

Formaður Rögnvald Erlingsson

Aðrir stjórnarmenn eru :

Baldur Jónasson (ritari)
Gauti Hallsson
Gísli Þorsteinsson
Jón Egilsson
Jón Ragnarsson (gjaldkeri)
Sigurjón Arason.

Þá voru kosnir tveir endurskoðendur. Þeir eru: Gísli Júlíusson og Sævar Árnason.


Eins og fram kom í umræðu um reikninga félagsins vildu félagsmenn að félögsgjöld hækkuðu og var ákveðið að félagsgjöld einstaklinga yrðu 4000 kr. og félagsgjöld fyrirtækja yrðu 10.000 kr.

Ákveðið var að fagráðið yrði skipað eins og árið á undan. Þeir sem eru í fagráði eru Einar Eyjólfsson, Sigurður Bergsson og Tómas Hafliðason.

Undir liðnum „Önnur mál“ fór lífleg umræða um málefni kæliiðnaðirins og voru félagsmenn enn ákveðnir í því að vinna að framgangi hans.


Fundarstjóri Jón Torfason sleit aðalfundinum, og kynnti tvo aðila til sögunnar til að kynna sín erindi.

Fyrst kom Sigurjón Arason og kynnti félagsmönnum frá rannsóknum sem hópur manna úr ýmsum áttum vann að. Hét erindið hans „Kæling á uppsjávarfiski frá miðum til vinnslu“.

Þessi rannsókn sýndi okkur hvað það er mikils virði að meðferð og kæling aflans sé góð og rétt. Þarna er um að ræða síld , kolmuna og loðnu.
Það kom fram í þessari rannsókn að kæling á aflanum gerði það að verkum að gæði fiskimjöls úr aflanum gæti orðið margfallt meiri en nú. Og þar væri verið að tala um mjög háar upphæðir.

Síðara erindið var kynning Guðmundar Matthíassonar hjá Optimar Ísland á krapa kerfum frá fyrirtæki hans. Þessi kynning var eiginlega gott framhald á því sem Sigurjón var að segja okkur frá í rannsókn sinni. Góð kæling aflans, t.d. með krapakerfi væri forsendi á góðu hráefni frá miðum til vinnslu í landi.


Skrásetjari : Jón Ragnarsson.

 

webmaster