| Lög
Kælitæknifélags Íslands
SAMÞYKKT Á STOFNFUNDI 14.04.1988 MEÐ SÍÐARI TÍMA
BREYTINGUM
NAFN OG TILGANGUR 1. gr. Nafn félagsins
er Kælitæknifélag Íslands. Félagið er stofnað
14. apríl 1988 og aðsetur þess er í Reykjavík. 2.
gr. Tilgangur félagsins er að auka þekkingu á sviði
kælitækni og miðla reynslu og auka samvinnu þeirra sem vinna
við kælitækni. - Markmiðum þessum hyggst félagið
ná m.a. á eftirfarandi hátt:
- Skipuleggja fyrirlestra,
umræðufundi, skoðunarferðir og námskeið.
- Stuðla
að aukinni og bættri kennslu og rannsóknum á sviði
kælitækni.
- Vinna að gerð reglugerða og staðla
í samvinnu við aðra fyrir kæliiðnaðinn og stuðla
að tæknilegum framförum.
- Taka þátt í
alþjóðasamstarfi á sviði kælitækni og
miðla upplýsingum um nýjungar.
FÉLAGATAL
OG FÉLAGSGJÖLD 3. gr. Aðalfélagar geta orðið
einstaklingar sem áhuga hafa á kæli- eða varmadælutækni,
og styrktarfélagar fyrirtæki, stofnanir eða félög.
Umsóknir um aðild að félaginu skulu vera skriflegar og sendar
stjórn. Úrsögn úr félaginu skal einnig vera skrifleg
og sendast stjórn, og miðast við áramót. 4.
gr. Stjórn félagsins getur strikað út félaga af
félagaskrá sem ekki hafa greitt félagsgjöld í
2 ár að undangenginni skriflegri viðvörun. Auk þess
getur stjórn félagsins vikið félaga úr félaginu
ef henni þykir efni standa til en borið getur hann mál sitt undir
almennan félagsfund. 5. gr. Félagsgjöld skulu standa
undir kostnaði við félagið og ákveðin á aðalfundi
eftir tillögu frá stjórn. Styrktarfélagar greiði
félagsgjöld sem miðast við stærð og umsvif. Námsmönnum
og ellilífeyrisþegum gefst möguleiki á að greiða
aðeins hálft gjald. Námsmenn framvísi gildu vottorði
frá skóla fyrir hvert skólaár. Gjalddagi félagsgjalda
er 1. júní ár hvert. Greiði félagsmaður gjöld
sín síðar er stjórninni heimilt að láta hann
bera vaxta- og innheimtukostnað. 6. gr. Stofnfélagar verða
allir þeir sem skrá sig í félagið fyrir fyrsta
aðalfund. AÐALFUNDUR OG STJÓRN 7. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Hann skal haldinn fyrir 1. maí ár hvert og skal boða til fundarins
skriflega með minnst þriggja vikna fyrirvara. Dagskrá fundarins
skal birt í fundarboðinu. Þessi mál skulu tekin
til meðferðar á fundinum. - Stjórn félagsins
gerir grein fyrir störfum undangengins starfsárs.
- Lagðir
fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
- Kosning stjórnar
og tveggja endurskoðenda.
- Félagsgjöld ákveðin.
- Önnur
mál.
Einfaldur meirihluti þeirra sem mæta á
fund ræður úrslitum í málum. Atkvæðisrétt
hafa einungis einstaklingar. 8. gr. Stjórnin er kosin á aðalfundi.
Hún skal skipuð formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur
meðstjórnendum. Formann skal kjósa sérstaklega en aðra
stjórnamenn skal kjósa saman og skipta þeir með sér
verkum. Auk þess skal kjósa tvo endurskoðendur. Stjórnin
er kosin til tveggja ára og á hverjum aðalfundi ganga þrír
stjórnarmenn úr stjórn og annað hvert ár er skipt
um formann. Endurkosning er aðeins leyfð einu sinni í senn. Eftir
fyrsta starfsár skal skipta um þrjá stjórnarmenn og
skal hlutkesti ráða. FAGRÁÐ 9.
gr. Fagráð skal skipað af stjórn félagsins til eins
árs í senn. Í fagráði skulu sitja minnst 3 menn
úr sem flestum greinum kælitækni. Formaður fagráðs
skal skipaður af stjórn. Fagráð skal fjalla um afmörkuð
tæknileg málefni sem stjórn félagsins felur því
og skila áliti til stjórnar. FRÆÐSLUNEFND 10.
gr. Fræðslunefnd skal skipuð af stjórn félagsins til
eins árs í senn. Í fræðslunefnd skulu sitja minnst
3 menn. Formaður fræðslunefndar skal skipaður af stjórn.
Nefndin skal fjalla um afmörkuð málefni er tengjast menntun og
fræðslu, sem stjórn félgsins felur henni og skila áliti
til stjórnar. BREYTING Á LÖGUM 11.
gr. Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi
þar sem breytingartillögur hafa verið kynntar í fundarboði.
Til að lagabreytingar öðlist gildi þarf samþykki tveggja
þriðju hluta greiddra atkvæða. FÉLAGSSLIT 12.
gr. Tillaga um að félaginu skuli slitið skal sæta sömu
meðferð og breyting á lögum sbr. 11. gr. Félagsfundur
tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins. Upp
Til baka |