Tilkynning!
Leitaðu með

 

 

Saga Kælitæknifélags Íslands

Kælitæknifélag Íslands var stofnað 14. apríl 1988 á Hótel Sögu í Reykjavík. Á stofnfundinn mættu 70 manns og urðu félagar fljótlega 150 talsins. Áður hafði sjálfskipuð nefnd undirbúið málið frá árinu 1987 þegar haldið var Norrænt varmadæluþing hér á landi. Nefndin hafði m.a. haldið undirbúningsfund 7. desember á Holiday Inn (nú Grand Hótel) það ár til að kanna undirtektir og var vel mætt á þann fund. Þar mættu um 50 manns sem ákváðu að vinna að stofnun félagsins og skipaðu undirbúningsnefnd til að vinna að því.

Fyrsta stjórn Kælitæknifélags Íslands

Frá vinstri Páll Lúðvíksson varaformaður, Sveinn Jónsson gjaldkeri,
Gísli Júlíusson, María J. Gunnarsdóttir formaður, Gísli Jóhannsson
ritari, Elías Þorsteinsson og Kristinn Sæmundsson

Á stofnfundinum var fyrsta stjórn kosin, María J. Gunnarsdóttir, formaður, Elías Þorsteinsson, Gísli Jóhannesson, Gísli Júlíusson, Kristinn Sæmundsson, Páll Lúðvíksson og Sveinn Jónsson. Auk þess voru kosnir í fagráð þeir Baldur Sveinsson, formaður, Björgvin Þ. Jóhannsson, Ingvar Kristinsson, Oddur Björnsson og Pétur Valdimarsson. Páll Lúðvíksson tók við sem formaður 1990. Sigurður Bergsson var formaður frá aðalfundi 1994 til síðla árs 1997 en þá tók Ásgeir Guðnason við formennsku. Núverandi formaður félagsins frá síðasta aðalfundi er Gísli F. Þorsteinsson.

Stærsta verkefni félagsins var að halda Norræna kæli-og varmadælumótið árið 1997. Sett var á fót sérstök undirbúningsnefnd sem undirbjó þingið sem stýrt var af Maríu J. Gunnarsdóttur. Á þingið mættu fulltrúar frá öllum Norðurlöndum og flutt voru allmörg erindi þar af nokkur af Íslendingum. Félagið hefur haldið fræðslufundi um mörg mál og gefið út nokkur fréttabréf til að dreifa upplýsingum til félagsmanna.

Á öðrum aðalfundi félagsins árið 1990 var ákveðið að rita sögu kælitækni á Íslandi í sögunefnd voru kosnir Björgvin Frederiksen, Baldur Sveinsson og Sveinn Jónsson. Sögunefndin tók strax til starfa og árið 1993 kom út bókin Fæða fryst - Saga kælitækni eftir Svein Þórðarson, sagnfræðing í Safni til Iðnsögu Íslendinga. Ritstjóri verksins var Jón Böðvarsson. Í bókinni er rakin saga kælitækni á Íslandi frá því fyrst er farið að byggja ískjallara og vinna ís á Tjörninni í Reykjavík á 19. öld fram á okkar daga. Vert er að benda áhugasömum um kælitækni á þetta gagnmerka rit til að fræðast um sögu kælitækni.

 

webmaster